Thursday, July 24, 2008

Komin heim! Jafnvel þó ég eigi eiginlega hvergi heima þá finnst mér ég samt komin heim :)

Höfum verið á flakki frá því að ég kom á klakann. Byrjuðum í Reykjavík, fórum þaðan á Hvanneyri til Sirrýar systur. Þar var Gummi að brasast í sólpall og við Bergrós Ásta að þvælast í kring. Þaðan lá leið okkar til höfuðstaðar Norðurlands, Akureyris en það var ættarmót hjá fjölskyldu Gumma. Ættarmótið var í Fögruvík og það var ný tilfinning að fara í pottinn þar sem enginn var ofurölvi, ekkert trúnó og ekkert kelerí. Aldurinn er að færast yfir ;)
Eftir að ættarmótinu lauk á sunnudeginum var haldið af stað í Ásbyrgi þar sem fjallkonur og sveitadrengir hittust. Þar var étið og drukkið, farið í kubb og íþróttakeppnir fram eftir nóttu. Ég er enn með marblett eftir glímuna við Eggert og ekki laust við að fimleikakeppnin hafi aðeins hreyft við liðamótunum sem voru farin að stirna óþægilega mikið. Bergrós Ásta var tvímælalaust yngsti þáttakandinn og fellur sjálfsagt í flokk fjallstubba.
Ég set síðar inn myndir úr Ásbyrgi! Ég er handviss um að þetta er ein af náttúruperlum heimsins. Ég hef víða farið og enn hef ég ekki rekist á margt sem toppar þennan stað.
Eftir þetta héldu fjallkonur og sveitadrengir aftur heim í hinn sífagra Þistilfjörð þar sem undirbúningur fyrir Káta Daga á Þórshöfn hófust. Við vorum í góðu yfirlæti í sveitinni og maturinn hennar Dúu kom jafnvægi á ballestina sem eitthvað hafði raskast í prófatíð.
Kátir dagar voru snilld. Hitti fullt af fólki sem ég hef ekki séð í aldir alda. Ragga frænka var gæsuð á föstudagskvöldinu sem endaði með hittingi í hlöðunni og síðar á barnum með Dalton bræðrum. Gumma leist ekkert á þetta og dreif sig í Egilsstaði með Bergrós Ástu svo ég var single og barnlaus! Enda kom ég ekki heim fyrr en kl. 5 daginn eftir :)
Partýliðið hittist svo hjá Laufeyju og Ragga og grillaði áður en var haldið í partý hjá Árna og síðan á ball.
Ég var eitthvað aðeins að slappast og vildi ekki eyða 2500 kalli á ball fyrst mig langaði ekkert rosalega. Reyndar var Tina Turner show með Siggu Beinteins. en mér fannst það heldur dýrt. Svo þegar þær fregnir bárust í partýið að það væri hætt að selja inn kl. 3 þá drifum við okkur á ballið og náðum að dansa til 4 svo það var helvíti fínt.
Sunnudagurinn fór síðan í heimsóknir og seinnipartinn keyrðum við inn á Akureyris. Gistum hjá Ilmi og Jóni sem áttu leið í gegnum Akureyri á sama tíma og við. Bergrós Ásta og Jóhann Ási náðu aðeins að bralla saman. Þrufum að hittast í lengri tíma svo þau nái að kynnast almennilega!
Morgunkaffi hjá Stínu frænku og aftur erum við komin á Hvanneyri. Gummi er að flísaleggja sumarbústað inni í Skorradal og ég er í góðu yfirlæti hjá Sirrý systur á meðan.


Um helgina ætlum við systkinin að hittast. Afmæli mömmu er um helgina, hún hefði orðið 54 ára gömul. Mér finnst svo ótrúlegt að 5 ár eru liðin frá því að hún dó. Það hefur svo ótal margt gerst á þessum fimm árum sem ég vildi óska að hún vissi af. Þrjú barnabörn hafa bæst í hópinn, Axel keypti hús og er fluttur til Vestmannaeyja, Sirrý og Júlli eru búin að byggja á Hvanneyri og giftu sig síðasta sumar, Gréta systir keypti Helgó eftir að Amma dó en er nú tímabundið flutt til Svíþjóðar að læra kynjafræði, trúlofuð honum Jóni Arnari. Við Gummi erum flutt til Spánar og eignuðumst á endanum barn, litla stubb, Bergrós Ástu. Ég sem hélt að móðurhlutverkið væri ekkert fyrir mig er að plumma mig bara ágætlega, minnst kosti betur en ég átti von á. Gummi er fæddur í foreldrahlutverkið og hjálpar mér með það sem uppá vantar í mömmuleiknum :)





Það er svo ótal margt sem mig hefði langað til að geta sagt mömmu mest þó að nú er einhver sem kallar mig mömmu. Lítil grallarafrekja með dökkbrún augu sem hleypur um allt. Nafnið kemur að hluta til frá henni, að hluta til frá Rósinni - Eitt er það sem aldrei gleymist, aldrei það er minning þín -. Seinna nafnið hefur hún frá Ástu ömmu sinni á Egilsstöðum en þær mamma voru góðar vinkonur og þær eiga vel saman í nafngiftinni á litlu Bergrós Ástu.
Þó þið munið aldrei kynnast mun ég reyna mitt besta til að kynna þig fyrir henni.

8 Comments:

Blogger Kristjana said...

Æi... ég kannast svo við þetta að finnast einhver vera að missa af svo miklu og langa að geta hringt eitt símtal eða svo og sagt frá því helsta. Það þyrmir alltaf yfir mig af og til.

Annars er ég viss um að mamma þín vissi að einhver myndi kalla þig mömmu fyrir rest. Hún efaðist jú aldrei um að þú myndir gifta þig, þrátt fyrir mótþróann á menntaskólaárunum!

2:28 AM  
Blogger Katrin said...

Hehe... ætli ég hafi ekki aðallega verið viss um að ég myndi aldrei finna neinn sem myndi vilja giftast mér ;)

11:35 AM  
Blogger Katrín said...

Hmm... kemst ekki inn á bloggið, veit ekki hvort það er hrunið eða hvað.

Kannski lagast það að sjálfu sér, aldrei að vita.

En er á lífi, lærandi fyrir próf. Geodesía og geofisica 1. og 2. sept! jibbí

7:20 PM  
Blogger Kristjana said...

Eg aetladi einmitt ad fara ad rukka thig um blogg. Eg lenti i thessu einu sinni og thad lagadist ad sjalfu ser, tho ekki fyrr en seint og sidar meir...

4:00 PM  
Anonymous Anonymous said...

Katrín mín, ertu ekki að grínast með þetta bloggleysi hjá þér???

10:25 AM  
Anonymous Anonymous said...

Bara að benda þér á það að þú getur nú skrifað eitthvað á síðuna hjá Bergrós fyrst þú kemst ekki hér inn!

8:41 PM  
Blogger Katrin said...

Hehehe... veit... ég er bara að hanga á netinu og lesa það sem hinir blogga :) Fer að laga þessa villu ef hún fer ekki að lagast að sjálfu sér.

7:50 PM  
Anonymous Anonymous said...

Fardu nù ad drìfa ì ad laga tetta, èg tarf ad fara ad heyra einhverjar frèttir! En jà planid er eitthvad ad breytast hjà okkur aldrei ad vita nema ad èg banki à hurdina hjà tèr à nyja àrinu! En annars er allt gott, erum ì Riò Dulce, forum til Livingstone ì fyrramàlid og svo til Honduras eftir nokkra daga. Knùs, Sunna

1:26 AM  

Post a Comment

<< Home