Tuesday, December 04, 2007

Hvað er svo jafnrétti?

Eins ótrúlegt og það nú er þá þarf ég að taka áfanga í lögfræði hérna við skólann. Sök séð ef það væri eitthvað í Evrópulögum eða eitthvað svoleiðis en það eru spænsk - pura spænsk lög. Þetta er alveg kleppur fyrir mig þetta málhalta að læra lögfræðina en kennarinn er frábær og heldur athyglinni algjörlega í tímum.

Never the less...
Það var verið að ræða jafnrétti. Kennarinn setti upp dæmi:

,, Þið eignist ykkar eigin mælingarfyrirtæki og fáið frábært verkefni upp í hendurnar. Hraðbraut niður að strönd með tilheyrandi mannvirkjum, brúm og jarðgöngum á leiðinni. Ykkur vantar að ráða 5 mælingamenn sem eiga eftir að puða duglega í mælingunum a.m.k. 2 ár á meðan verkefnið stendur yfir. Um vinnuna sækja 5 stæltir strákar og 5 óléttar konur. Skv. lögum verður hann að ráða 40% kvenna í starfið (veit ekki hvort það er þannig í hina áttina líka)
Hver sendir ólétta konu í 40 stiga hita á fjöll að mæla? (Fyrir utan að konan sé að sækja um vinnu við þessar aðstæður...) "
Rökræðan kom á móti að konan verður ekki alltaf ólétt. Svarið var að eftir að barnið væri fætt þá myndi móðirin náttúrulega sjá um það. Þó svo að það hefði nýlega gengið í gegn að karlmenn fá eins mánaðar fæðingarorlof á móti 4 hjá móðurinni. Þetta fannst liðinu magnað.
Þá varð ég bara að hrista af mér feimnina við málheltina og sagði þeim hvernig þetta væri á Íslandi.
Jafnrétti er jafnrétti... í báðar áttir. Karlinn á 3 mánuði, konan 3 og svo ráða þau því hvernig þau ráðstafa 3 sín á milli. Með þessu móti er ekkert sem segir að það sé verra að ráða konu en karl eftir að krakkinn er fæddur. Hver veit nema þessir 5 stæltu strákar hafi allir átt óléttar konur heima og komi til með að taka fæðingarorlof til jafns á við þær.
Þetta fannst þeim hreint ótrúlegt! Kennaranum fannst það svo sniðugt að ég fékk hálfan punkt á næsta prófi ;)
Svo ég bara varð að bæta um betur. Sagði þeim að ég ætti krakka sem væri eingöngu á brjósti en það kæmi ekkert í veg fyrir að ég væri í námi þar sem maðurinn minn væri í sínu 6 mánaða fæðingarorlofi... og bætti um betur að systir mín væri að vinna þó hún væri með 4 mánaða gamla stelpu og hennar maður væri heima í fæðingarorlofi... og að maður hinnar systur minnar væri einnig heimavinnandi. Reyndar væri það bara þannig þessa stundina að allir menn okkar systra væru að gæta bús og barna þessa dagana á meðan við ynnum útivið - og þeim færist það bara sérlega vel úr hendi.
Stelpunum fannst þetta æðislegt, strákunum fáránlegt og kennarinn velti fyrir sér jafnræðinu.

Ég var nú bara stolt af þingræðinu á litlu eyjunni minni þá stundina, eins og svo oft áður :)

10 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Ég er ánægð með þig að koma þessu á framfæri og gefa þeim góða mynd af okkur systrum ;o) Að taka dæmi um 5 óléttar konur er náttúrulega frekar óraunhæft en engu að síður... það er mjög líklegt að þetta virki í hina áttina líka, 40/60 reglan, svoleiðis lög er hægt að setja þar sem fjöldi beggja kynja í ákveðinni stétt er nokkur en t.d. sæi ég það ekki fyrir mér að setja lög um að ráða 40% að lágmarki karlkyns hjúkrunarfræðinga... þar sem innan við 5% eru karlkyns... pæling
Gréta syss

7:18 AM  
Anonymous Anonymous said...

Þú ert nú meiri eyjarskegginn :-)

7:45 AM  
Blogger Kristjana said...

Ánægð með þig! Ég tek ykkur Gumma einmitt oft sem dæmi þegar barneignir talast upp í vinnunni... "Þú þarft ekkert að hætta að vinna frekar en þú vilt, áttu ekki mann?" Fólk horfir á mig eins og ég sé geimvera.

5:36 AM  
Anonymous Anonymous said...

hahaha þú ert frábær

8:53 PM  
Anonymous Anonymous said...

Þið fáið ekkert jólakort frá mér, þessi jólin. Vona samt að þú gleymir ekki að senda mér. Kær kveðja og gleðileg jól.
Árni Davíð

12:36 PM  
Blogger Oddur Ólafsson said...

Gott hjá þér!
Þú átt eftir að verða ráðherra...
Gleðileg jól og bestu óskir um farsælt gamlárskvöld frá okkur í Bushlandinu góða.

4:42 PM  
Blogger Oddur Ólafsson said...

Eða kannski ráðstýra eða ráðfrú?

4:43 PM  
Anonymous Anonymous said...

hvernig er það á ekkert að láta í sér heyri með bloggi. kv af þistilfjarðargrunninu

3:04 AM  
Anonymous Anonymous said...

Jæja, er bara búið að taka af þér tölvuna af jafnréttislögreglu Spánar, eða?????


Baulaðu nú Búkolla mín ef þú ert nokkurs staðar á lífi!

Hildur húsfrú í Holti

9:08 AM  
Anonymous Anonymous said...

Sæl ljúfust. Ég ákvað að kommenta, bara svona að því að það er svo langt síðan síðast :). Knús, knús!
Lísa

10:46 AM  

Post a Comment

<< Home