4 dagar í að við komum heim ;)
Tíminn liður ótrúlega hratt, ég verð komin heim fyrr en varir. Á að vísu eitt andskotans próf eftir, í fyrramálið! Og spái svo sem ekki góðu gengi í því, en það borgar sig samt að fara og sjá hvernig þetta fer allt saman. Það er svo sem vitað að góðar líkur eru á því að þetta próf verði endurtekið... svo það þýðir ekkert að stressa sig á því... bara grenja og skrifa svo bók um það!
Fljúgum frá Alicante. Tökum ökuferðina í tveimur pörtum, þetta er of löng ferð fyrir litla stubb. Hef svo sem aldrei ferðast með krakka, en best að hafa vaðið fyrir neðan sig.
Dettur í hug þegar er talað um fyrstu ökuferðina og svoleiðis. Önnur ökuferðin okkar Stubbs var með spænskum leigubílstjóra. Þeir sem hafa ferðast með spænskum leigubílstjóra vita hvað ég á við! Við erum fær í flestan sjó eftir það ;)
Svo á Stubbsi afmæli í dag... 1 mánaða.
Sniðugt með þessi afmæli. Í ensku er það birthday... heldur upp á daginn sem þú fæddist, í spænsku er það cumpleano... þ.e. líkur árinu. Við á Íslandi köllum þetta afmæli - þ.e. aflestur af mæli væntanlega en... einingin kemur aldrei fram. Við getum því átt mánaðar afmæli - og áfram upp í árs afmæli. Núna er vænlegt að halda upp á afmælið fyrst vikulega, svo mánaðarlega, þar á eftir einu sinni á ári fram að svona 15 ára. Þá eru merkisafmæli eins og 17 ára og bílpróf, 18 ára inn á barinn, 20 ára í ríkið... síðan er það á 5 ára fresti, og eftir þrítugt er það á 10 ára fresti.
En þar sem það er engin eining á þessu hjá okkur, þá er þetta eiginlega fjórða afmælið, ef við gerum ráð fyrir að byrjað hafi verið að telja skv. vikum, ekki dögum. Ef svo er þá væri þetta væntanlega tíunda afmælið, ellefta ef við gerum ekki ráð fyrir að það séu akkurat 4 vikur í mánuðinum.
Never the less...
Svona er staðan á Stubbnum í dag. Nokkuð sátt við lífið bara held ég, tjáir sig lítið um málið að svo stödd máli. Kannski ágætt á meðan hún tjáir sig ekkert um það þar sem tjáningarmátinn er enn binomial... on eða off grenjur;)
Svo sjá náttúrulega allir hvaðan hún hefur þetta viðkvæma vinalega bros:)
Og sumir lifa í þeirri trú að áletrunin á bolnum sé sönn!!!
Leika við krakkann... eða leika sér að krakkanum... well who gives! Hún man ekkert eftir því hvort eð er;)
Loksins er orðið gaman í baði. Balann fengum við frá spænsku bekkjarfélögunum ásamt skiptiborðinu. Fyrsta baðvatnið var helst til kalt, skildum ekkert í því hvað krakkinn argaði. Svo erum við búin að finna út úr því. Það stendur nefninlega á hitamælinum sem Ilmur sendi okkur "Ideal for babies"... þegar við sáum það þá hættu grenjurnar:)
Þetta hefst allt poco a poco ;)
10 Comments:
ó hvað hún er sæt og lík frænku sinni hehe, hlakka ekkert smá til að sjá ykkur, allir í Leifsstöð eiga eftir að heyra fagnaðarlætin ;o))))))
Gréta systir
Grate! Miðað við ástandið á aþjóðaflugvöllum í dag og fréttir um hryðjuverkamenn á Íslandi... kannski er betra að bíða með fagnaðarlætin þangað til í Dunhaganum... við erum hvort eð er að flytja þaðan;)
Það væri eftir okkur að vera stoppuð og helst snúið við eftir að hafa verið 9 mánuði í burtu! Gummi er líka svo krimmalegur að hann er alltaf tekinn í tékk!
En hrikalega hlakka ég til að koma heim... 3 og hálfur dagur !
Hún er úber falleg daman!!!! Hlakka allveg hrikalega til að hitta ykkur, vonandi verður það fljótlega :)
Berglind
Voða er hún sæt. Með RISASTÓR augu líka. Og blíðlynda maddonnubrosið hennar mömmu sinnar!
Úff, ef bleika samfellan passar svona fínt þá hljóta hinar að hafa verið allt of litlar... er þessi ekki í stærð 3-6 mánaða, eða er ég að rugla?
Haha... henni finnst rjóminn góður:) og kann sér ekki hóf! Það er ekki fyrr en fer að vella út um eyrun að hún hugsanlega neyðist til að staldra aðeins við í átinu!
Gummi heldur því fram að þetta sé klárlega úr móðurættinni!
Græni bolurinn smellpassar samt núna :) Það er bara svo gaman að prófa öll fötin;)
Og hvað ég hlakka til að koma heim og hitta alla heima fyrir. Stubbur er enn ekki stærri en svo að ég næ ekki alveg að falla í skuggann af honum, svo fólk verður að leika við mig líka;)
Ótrúlega vel heppnað barn, þið hljótið að hafa vandað ykkur rosalegavið þetta hehehe. En svo er bara að drífa sig heim í sveitina svo maður fái að sjá ykkur sem fyrst, hlakka til.
hún er svoo sæt...hlakka til að sjá ykkur öll saman við heimkomuna.
kv. Lára
Haha, snilld þetta með kalda vatnið...
Oh ég er að deyja mig langar svo að hitta ykkur!!!! Reyni að koma suður sem fyrst, nú eða norður, austur.. what ever......
kveðja,
Ilmur
Hó hó!
Ég hef sniglast af og til á bloggið þitt og fylgst með. Til hamingju með stubb! Gangi ykkur vel með framhaldið :)
Kveðja,
Berglind Inga
fyrrum Kárahnjúkasjoppupía
Hvernig gekk svo sidasta profid? Thid haldid vonandi ekki ad thid sleppid vid ad blogga bara vegna thess ad thid erud a vergangi? Mig langar ad sja fleiri myndir af Stubb!
Post a Comment
<< Home