Wednesday, October 20, 2004

Hah... og ég sem hélt að ég væri enskulúði! Svona get ég brenglað bæði orðatiltækjunum og enskunni ... to drag a tooth out of a pig... Árni hefur greinilega ætlað að taka mig í kennslustund í þessu, ekki veitir af.

1. The raisin at the end of the hot-dog = Rúsínan í pylsuendanum.
2. I measure one-pulled with it = Ég mæli eindregið með því.
3. Now there won't do any mitten-takes = Nú duga engin vettlingatök.
4. I come completely from mountains = Ég kem alveg af fjöllum.
5. Thank you for the warm words into my garden = Þakka þér fyrir hlý orð í minn garð.
6. Everything goes on the back-legs = Það gengur allt á afturfótunum.
7. He's comepletely out driving = Hann er alveg úti að aka.
8. It lies in the eyes upstairs = Það liggur í augum uppi.
9. She gave me under the leg = Hún gaf mér undir fótinn.
10. He stood on the duck = Hann stóð á öndinni.
11. I teach in breast of him = Ég kenni í brjósti um hann.
12. On with the butter!!! = Áfram með smjörið!

Ég ætla að tileinka mér þetta og nota við hvert tækifæri... on with the butter!!!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home