Þá er þessu úthaldi að ljúka, síðasta vaktin í bili. Náði 21 vakt þetta úthaldið svo þetta er komið ágætt í bili.
Á eftir er ferðinni heitið niður á Egilsstaði þar sem við Guðmundur mæltum okkur mót. Hann ætlar að koma með fákinn minn á bíl með sér austur. Mig langar að komast í útilegu, veiðiferð og hitta Emilíu; spurning um að slá þessu öllu saman í eitt.
Síðan er ferðinni heitið á Akureyri, á laugardag eða sunnudag. Þar verð ég svo út vikuna að halda upp á 5 ára stúdentsafmæli. Á að mæta í vinnu að kvöldi 17. júní. Sé ekki fram á að halda upp á 25 ára afmælið mitt þar sem ég verð hérna uppfrá. Kannski fæst kokkurinn til að elda eitthvað gott handa mér.
En smá vangaveltur úr hversdagsleikanum... er ég lítil? Mér hefur alltaf fundist ég frekar stór manneskja, svo allt í einu núna finnst mér allir stærri en ég. Buhu...
Stundum þegar ég er að tala við hávaxna manneskju sem stendur nálægt mér þá fæ ég hálfgerða ónotatilfinningu því mér finnst viðkomandi gnæfa yfir mér.
Svo í matnum í gær þá var ég að skjóta á einhvern sem mér fannst svona í minni kantinum... svo var gaurinn bara þó nokkuð hærri en ég (áts!).
14 Comments:
Þú ert stór inni í þér Katrín mín... en óttaleg písl að utan! hehe. Vertu fegin. Það er hundleiðinlegt að gnæfa yfir karlmenn.
... en ég er ekkert lítil! 170.6 cm! Það er örugglega hærri en meðalmanneskja eða það u.þ.b. Ég hef bara alltaf upplifað mig stærri... hehe - svona er mikilmennskubrjálæðið ríkjandi í manni:)
Þú ert risasmá!
Til hamingju með daginn Katrín mín - vona að þú hafir sofið vel eftir næturvaktina og þannig fengið amk "skítsæmilegan" afmælisdag :). Já og takk fyrir brilliant helgi, og sérstaklega snilldar gæsun!! Hún var æði!! Hlakka ólýsanlega til að fá ykkur vestur til mín um næstu helgi!!! Knús og milljón afmæliskossar,
Ilmur
þú lítil...??? koddu bara og hittu mig elskan og þá finnst þér þú risastór!
og þetta var ég Lára litla leggjalanga :)
Farðu nú að drífa inn myndir af landsmótinu. Svo var ég með myndavélina allan tímann, fann hana þegar ég fór að ganga frá draslinu þegar ég kom heim. tíhí
Ég dáist að því hvað þú ert dugleg að blogga.
Kveðja
Gunnarsstaðadóninn
Good design!
[url=http://hfaolghx.com/ogli/smja.html]My homepage[/url] | [url=http://fnomalvj.com/ulmj/ohzx.html]Cool site[/url]
Great work!
My homepage | Please visit
Well done!
http://hfaolghx.com/ogli/smja.html | http://raegwwhk.com/zhdw/elso.html
I have been looking for sites like this for a long time. Thank you! » » »
Very nice site! Dunlop sp sport 5000 tires av + asian Teen blonde stripper Solomon hiking shoe land rover heavy duty alternator Area rugs wool kar Milena velba videos very large breasts
Where did you find it? Interesting read »
Post a Comment
<< Home